25.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 934 í B-deild Alþingistíðinda. (1451)

17. mál, kosningar til Alþingis

Jón Ólafsson:

Mætti ekki vísa þessu máli til nefndar þeirrar, er íhuga skal kjördæmaskifting landsins?

Það er ekki líklegt, að nefndin verði færslu kjördagsins mótfallin, en hitt er hugsanlegt, ef til kosningabreytingar kemur, að þá atvikaðist svo, að dagurinn yrði ekki hinn sami í öllum kjördæmum.

Legg því til, að frumv. sé vísað til þeirrar nefndar.