15.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1103 í B-deild Alþingistíðinda. (1517)

16. mál, aðflutningsbann

Jón Ólafsson:

Eg hefði eigi staðið upp, ef eg hefði eigi viljað kvitta fyrir ummæli vinar míns og samdeildarmanns 1. þm. S.-Múl. (J. J.). Eg lýsi enn yfir því, að eg ætla að greiða atkv. með þessu frv. og eg er ekki svo vantrúaður á kosti þess, að eg álíti það geti orðið mér að fótakefli.