03.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1132 í B-deild Alþingistíðinda. (1537)
20. mál, fræðsla barna
Flutningsmaður (Jón Þorkelsson):
Það sem farið er fram á í frv. þessu er það, að skólum einstakra manna sé gert jafn hátt undir höfði og öðrum skólum. Hefi sérstaklega haft fyrir augum barnaskóla hér í Reykjavík, sem viðurkendur er sem góður skóli, en sem nemendurnir eða aðstandendur þeirra hafa orðið að sækja um leyfi til skólanefndar, til þess að mega sækja þann skóla. Frumv. fer fram á, að þessa leyfis þurfi ekki með. Að öðru leyti er ætlast til þess, að skólar þessir standi undir umsjón fræðslumálanefndar og stjórnarráðsins. Þarf eg ekki að orðlengja frekar um þetta, en geri það að tillögu minni að frumv. þessu sé vísað til nefndar þeirrar, sem skipuð er hér í deildinni til þess að athuga kenslumál.