18.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1142 í B-deild Alþingistíðinda. (1555)
89. mál, varabiskup
Skúli Thoroddsen:
Frumv. þetta er gott, að því leyti, að tilgangurinn er sá, að tryggja það, að biskupsvígsla geti einatt farið fram hér á landi; en á hinn bóginn verður því ekki neitað, að verði frumvarp þetta að lögum, þá verður biskupsvígslan landinu allkostnaðarsöm, þar sem vara-biskupi eru ætlaðar 500 kr. á ári, þótt biskupsvígsla komi mjög sjaldan fyrir, ef til vill að eins 34 sinnum á öld, eða ekki það. Mundi ekki mega koma þessu svo fyrir, að láta dómkirkjuprestinn í Reykjavík eða prófastinn í Kjalarnesþingi vígja hinn nýja biskup landssjóði að kostnaðarlausu?
Eg hefi getið þessa til athugunar væntanlegri nefnd, og leyfi mér að leggja það til, að þriggja manna nefnd verði skipuð.