13.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1170 í B-deild Alþingistíðinda. (1593)

21. mál, vígslubiskupar

Forseti (H. Þ.):

Eg sé ekki næga ástæðu til þess, að taka mál þetta út af dagskrá vegna þeirra ástæðna, sem háttv. 1. þm. N.-Múl. (J. J.) kom fram með. — Háttv. þm. hafa haft nægan tíma til að koma fram með breyt.till. við það, því að það er svo langt síðan, að mál þetta var endursent deildinni. En annars er gott að heyra álit fleiri h. þingdm. um það, hvort þeir óski, að málið sé tekið út af dagskrá og umræðunni frestað.