17.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1235 í B-deild Alþingistíðinda. (1663)
28. mál, útlent kvikfé
Framsögumaður (Sigurður Sigurðsson):
Eg get verið stuttorður um þetta litla frumv. Landbúnaðarnefndin hefir tekið málið að sér eftir bendingu og tillögum dýralæknisins, og því er það hér borið fram. Dýralæknirinn og aðrir læknar líta svo á, að ef banni þessu eigi sé komið á, geti af því leitt, að hundapest og aðrar drepandi pestir geti borist til landsins með hundum, er hingað kunna að flytjast með ferðamönnum eða af öðrum ástæðum. Vona eg, að háttv. deild taki þessu máli vel.