27.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1255 í B-deild Alþingistíðinda. (1706)
30. mál, girðingar
Framsögumaður (Sigurður Sigurðsson):
Eins og eg tók fram við 1. umr. er frv. þetta að nokkru leyti bygt á því, að fjárveitingarvaldið heimili lán úr landssjóði til girðingaefniskaupa. Málið er komið vel á veg og hefi eg góða von um, að samþykt verði í deildinni að gefa stjórninni heimild til að veita slík lán.
Í öðru lagi inniheldur frumv. ákvæði um, hvernig girðingar eigi að vera. Þær girðingar teljast ekki fullgildar eftir því, sem ekki geta fullnægt skilyrðum laganna í því efni. Frumv. tryggir því það, að girðingar verði betri og vandaðri en verið hefir, og styður það að góðri ending þeirra. í þriðja lagi eru í lögunum ákvæði um, að sýslu- og hreppsnefndir geti gert samþyktir með tilliti til samgirðinga og fleira, er þar að lýtur. Þetta eru þeir þrír meginþættir eða höfuðatriði frv. Þar sem engin andmæli eða breyt.till. hafa komið fram, sé eg ekki ástæðu til að fara út í einstakar greinar eða einstök atriði. Eg býst við, að háttv. deildarmenn muni samþ. frumv., að minsta kosti í öllum aðalatriðum. Eg óska því, að málinu verði vísað til 3. umr.