19.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1301 í B-deild Alþingistíðinda. (1768)
36. mál, sala á Kjarna
Björn Kristjánsson:
Það sem kom mér til að standa upp er tillaga, er eg hefi ekki áður séð. Hún er þess efnis að selja þjóðjörðina Kjarna í Hrafnagilshreppi fyrir 12000 kr. Það stendur eitthvað óljóst hér á bak við, er eg skil ekki. Það stendur að heimilt sé að selja Akureyrarbæ jörðina, ef Hrafnagilshreppur vill ekki nota forkaupsrétt, sem hann vitanlega ekki hefir. Viðvíkjandi því sem hv. ræðumaður sagði, að lagamenn álitu að áminstur hreppur hefði forkaupsrétt, þá er þar til að svara, að skoðanir lögfræðinga eru eins margar um það og þeir sjálfir eru. Háttv. þingm. varð tíðrætt um, að Akureyrarbær hefði gnægð lands til ræktunar. Sama er að segja um Reykjavík, hún hefir nægt land til ræktunar en beitilandið vantar, og er sá bithagaskortur mjög tilfinnanlegur, með því hér í bænum er hátt á annað hundrað kýr, sem ekki gera hálft gagn vegna skorts á góðri beit. Það sem eg legg áherzlu á, eru slægjur og beitilönd. Hann talaði um of lága virðingu. Það er sama sem að segja, að matsmennirnir hafi ekki gert skyldu sína, en svikist um og virt jörðina of lágt, að eins Akureyrarbæ í hag. Slíkt er hin mesta fjarstæða, því matsmenn eru eiðsvarnir menn, er geta naumast verið hlutdrægir. Orð hans eiga því als ekki við, er hann sagði, að 3800 kr. hefðu verið hafðar af landssjóði. Slík ummæli eru algerlega röng og mjög óheppileg. Eg get ekki komist að annari niðurstöðu, en að þeir hafi virt hana fullhátt, enda er það sennilegast. Og hér er líka hægt að styðjast við virðingu sýslunefndarinnar sjálfrar, sem samkvæmt prentuðum skýrslum, sem hér liggja fyrir,
hefir matið jörðina á 7500 kr. Í sambandi við þetta vil eg benda á, að höfuðbólið Bjarnarhöfn, sem er helmingi hærri að hundraðatali eða meira, var nýlega selt fyrir 9000 kr. Sú jörð er ekki langt frá kauptúni, og þar eru ágætir landskostir, slægjur afarmiklar, tún, sem gefur af sér 300 hesta, ágæt beitilönd, dúntekja, selveiði, kofnaveiði og eyja-slægjur. Jörðin er nálægt 90 100 hndr. að nýju mati, og hefir því jarðarhundraðið verið um 100 kr., en hér eru 200 kr. boðnar fyrir hvert hndr. Auk þess er við sölu þessarar jarðar tekið fult tillit til hvers virði jörðin er nú í hæsta lagi. Þinginu er enginn greiði gerður með því að skýra því frá málinu öðru vísi en það liggur fyrir, eins og andmælendur frumv. þessa virðast hafa gert.