01.05.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1315 í B-deild Alþingistíðinda. (1796)

41. mál, bankavaxtabréf

Jón Magnússon:

Eg tók það fram við síðustu umr. þessa máls, að minni hluti nefndarinnar hefði ekki getað orðið háttv. meiri hluta samferða í því, að leggja það til, að landssjóður tæki upp á sig frekari ábyrgð fyrir landsbankann, en nú hefir verið gert.

Eg vil ekki vera að endurtaka það, sem eg sagði þá; vænti líka, að mönnum sé það ljóst, hve athugavert er að vera hvað eftir annað að binda landssjóði slíkar byrðar með nýjar og nýjar ábyrgðir.