21.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1358 í B-deild Alþingistíðinda. (1851)

42. mál, gagnfræðaskólinn á Akureyri

Framsögumaður (Jón Magnússon):

Eg hefi ekkert um frumv. þetta að segja, nema það, sem er háttv. þingdeildarmönnum kunnugt og hin hv. deild veit, að þörf er á að bæta einum kennara við gagnfræðaskólann á Akureyri. Það er svo ofureinfalt, að það ætti ekki að tefja tímann og lengja umræðurnar.

Eg vil því að eins leyfa mér að leggja það til fyrir nefndarinnar hönd, að frumv. verði samþ. óbreytt.