20.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í B-deild Alþingistíðinda. (198)

8. mál, laun háskólakennara

Framsögumaður (Lárus H. Bjarnason):

Þar sem þetta er framh. 1. umr., og nefndarálitið er nokkuð rækilegt, finst mér nægilegt að vísa til þess og ástæðna frumvarpsins, sem eru enn ítarlegri. — Eg læt því sitja hér við að sinni, og vona að háttv. deild láti frumv. ganga til 2. umræðu.