11.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1470 í B-deild Alþingistíðinda. (1999)

56. mál, byggingarsjóður

Jón Magnússon:

Skal ekki tala mikið um málið sjálft, en að eins drepa á það, að hér er ekki verið að gefa lög um það, að lóðir þessar skuli seljast fyrir 3 kr. ? al., heldur fyrir það sem þær eru metnar af óvilhöllum mönnum, þó má ekki selja ? al. fyrir neðan 3 kr. Mér finst geti verið spursmál um það, hvort það frá fjárhagslegri hlið skoðað sé heppilegt fyrir landið að reyna ekki til að fá eitthvert verð fyrir þessar lóðir, heldur láta þær liggja árum saman gagnslausar. Álít heldur ekki vel sæmandi fyrir þessa háttv. deild að fella þetta frumv. þegar í stað — sem efri deild hefir samþykt; ætti að minsta kosti að vilja athuga málið.