16.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1506 í B-deild Alþingistíðinda. (2057)
68. mál, æðsta umboðsstjórn Íslands
Jón Magnússon:
Eg skal vera fáorður um þetta mál. Vildi að eins hreyfa því, að eg efast nokkuð um, að þessi brt. sé samkvæm ákvæðum stjórnarskrárinnar um þetta efni.
Eg veit ekki til, að í löggjöf vorri séu eftirlaun bundin við ákveðið árabil; um biðlaun er þetta aftur á móti svo. En eftirlaun um ákveðið árabil þekkir löggjöf vor ekki. Slík eftirlaun virðist stjórnarskráin því varla hafa getað haft fyrir augum.
Á þetta vildi eg leyfa mér að benda hinni háttv. deild.