16.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1533 í B-deild Alþingistíðinda. (2093)
99. mál, sala þjóðjarða
Flutningsmaður (Jón Ólafsson):
Herra forseti! Tilgangur okkar flutnm. með frumv. þessu er að tryggja betur tilgang þjóðjarðasölulaganna. Tilgangurinn sá, að jarðirnar haldist betur í sjálfsábúð kaupanda, heldur en hingað til; því að það hefir sýnt sig, að jarðir hafa verið seldar ábúanda, er svo strax hefir selt þær aftur, eða þetta beinlínis verið leppakaup.
Tilgangurinn er því góður með frv. þessu, og vona eg að deildin taki því vel.