06.05.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1573 í B-deild Alþingistíðinda. (2147)

103. mál, eiðatökur

Jón Jónsson S.-Múl.:

Það, sem eg vildi benda á, er að eins það, að eg get ekki betur séð, en að allar þessar þingsályktunartill. meiri hlutans hljóti að koma af því, að háttv. meiri hluti ekki treystir stjórninni. Og háttv. þm. ættu að geta séð og skilið það, að alt þetta áskorunar-fargan er á næstu grösum við reglulega vantraustsyfirlýsing.