23.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1764 í B-deild Alþingistíðinda. (2243)

111. mál, Landssjóðshluttaka í Thorefélaginu

Framsögumaður meiri hlutans (Björn Kristjánsson):

Þegar tilboð frá Sameinaða gufuskipafélaginu lá seinast fyrir þinginu, þá var það skrifað tilboð eins og nú. Það sendi þá einnig umboðsmann (Jón Jónsson S.-M.: Það sendi engan umboðsmann 1907) og hann hafði auðvitað umboð til þess að gera breytingar við það og semja um ný atriði.