24.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1807 í B-deild Alþingistíðinda. (2273)
76. mál, farmgjald
Framsögumaður (Björn Kristjánsson):
Eg ætlaðist til, að þetta frumv. næði fram að ganga á þessu þingi, því að öðrum kosti er ekkert til þess að byggja á á næsta þingi, ef menn hugsa sér, að velja þessa leið til þess að afla landssjóði tekna. Án ábyggilegrar skýrslu, er ekki unt að semja toll-lagaskrá.
Hvað það snertir, að vísa þessu til milliþinganefndar, þá er það sama, sem vísa til þingsins, því hennar störfum er lokið, og hún hefði heldur ekki neitt betra að byggja á í þessu efni, en nefndin, þó hún enn ekki hefði lokið störfum sínum.