01.05.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1812 í B-deild Alþingistíðinda. (2282)
76. mál, farmgjald
Framsögumaður (Björn Kristjánsson):
Það mátti búast við að það í yrði hvellur út af þessu máli hjá minni hlutanum. Hinn háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) áleit málið illa undirbúið, og kvað það ekki eiga að öðlast samþykki deildarinnar, en hann gleymdi alveg að færa minstu ástæðu fyrir sínu máli. Aftur á móti hefi eg fært glöggar og gildar ástæður fyrir því, að frv. þetta eigi að ná fram að ganga, einmitt á þessu þingi, til þess að næsta þing hefði eitthvað á að byggja í þessu máli, og það sem eg hefi sagt málinu til stuðnings verður ekki hrakið með réttum rökum; það var því engin ástæða til þess fyrir háttv. þm. að fara að panta mótmæli úr fjarlægum héruðum. Að málið sé illa undirbúið frá nefndarinnar hálfu er að vísu satt, að því leyti sem nefndina vantaði allar ábyggilegar skýrslur, en þær mundu alveg eins vanta á næsta þingi, og þær mundi alveg eins vanta í skattamálanefndinni; hún mundi ekki geta notað aðrar skýrslur en þær, sem nefndin hefir notað. Málið er því eins vel undirbúið og kostur er á, með þeim gögnum, sem nú liggja fyrir. Að það geti haft nokkra þýðingu fyrir framgang þessa máls, að 36 kaupmenn hér í bænum hafa sent áskorun um, að samþykkja aldrei þessi lög, fæ eg ómögulega séð. En aftur á móti finst mér það undarlegt, að kaupmannastéttin skuli vera að skifta sér af þessu máli, eða af löggjafarstarfi þingsins, því mér vitanlega hefir kaupmannastéttin hingað til hvorki hreyft hönd né fót til þess að koma lagi á verzlunarlöggjöf landsins, nema eitt ómerkilegt frumv., sem þeir hafa sent hér inn á þingið í þetta skifti, (frumv. um verzlunarlærlinga), þótt þeim ætti að vera það fullkunnugt, að verzlunarlöggjöf landsins er í kalda koli. Að segja annað eins og að þetta sé varhugavert og ósanngjarnt, nær ekki nokkurri átt, og má eg spyrja þessa háttv. kaupmenn: Hvar ætlast þeir til að tekjur landssjóðs séu teknar?
Þá var minst á umbúðirnar. Já það getur vel verið, að umbúðir á öli séu nokkuð þungar í samanburði við innihaldið, en þar sem ekki er ólíklegt, að ölskattur verði hækkaður á næsta þingi, þá fæ eg ekki séð, að það geri svo mikið til, og get als ekki kallað það neinn galla. Að þetta sé ójafnaðarskattur jú, hvaða skattar eru ekki ójafnaðarskattar; eins og nú er er jöfnuðurinn engin. Eg hefi áður sýnt fram á, að ómögulegt er að koma á faktúrutolli nema með því að komið verði á tolleftirliti, og hvern kostnað mundi það ekki hafa í för með sér? Það er þess vegna ekki hægt að taka með eins mjúkum silkihönskum á toll-löggjöfinni hér og annarstaðar. Eg er viss um, að þjóðin tekur þessum lögum vel, og ef annmarkar yrðu á þeim nú, þá má bæta úr því á næsta þingi. Eg fæ því als ekki séð, að þingið þurfi að taka neitt tillit til þessara áskorana, sem hingað hafa borist, enda borga kaupmenn minstan hluta af tollinum, og þar að auki er þessi skattur svo lágur, að varla nokkur maður mun finna til þess að greiða hann.