26.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1835 í B-deild Alþingistíðinda. (2295)

74. mál, hlutabréf Íslandsbanka

Framsögumaður (Magnús Blöndahl):

Eg get verið stuttorður um málið í þetta sinn. Því hefir verið tekið svo vel í háttv. deild, og engin breyt.till. komið við það. Eg vil því að eins leyfa mér að mælast til þess, að frv. njóti sömu velvildar deildarinnar framvegis, og verði samþ. af háttv. þingdeild.