22.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1957 í B-deild Alþingistíðinda. (2410)

130. mál, samgöngumál

Pétur Jónsson:

Eg var ekki að fara þess á leit, að fjárlaganefndin fengi sem flest mál að fjalla um, því að hún hefir ærið að starfa. En samgöngumálin eru mál, sem hún kemst ekki hjá að fjalla um, því þau velta á fjárframlögum í fjárlögunum, og það er stærsti útgjaldaliðurinn á fjárlögunum. Fjárlaganefndin verður því að gera aðaltillögurnar um samgöngumálin.