11.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1985 í B-deild Alþingistíðinda. (2449)
139. mál, áætlanir og mælingar verkfræðings
Hálfdan Guðjónsson:
Umræður um þessar tillögur sýnast fara að verða nokkuð einkennilegar. Eg get sagt hv. þd. það, að það sem fyrir okkur vakti flutningsmönnum, var hvorki fordild eins og háttv. 2. þm. Arn. (S. S.) gat til, né heldur vildum við bekkjast til við verkfræðinginn, svo sem hæstv. ráðherra (H. H.) vildi vera láta. Þessar getsakir eru gersamlega ástæðulausar.
Háttv. 2. þm. Húnv. (B. S.) hefir þegar sagt, að þessi mál séu áhugamál héraðsbúa og þar sem lítið er gert að því að hlynna að þeim, sýnist sanngjarnt að óska þess, að kröfurnar séu ransakaðar. Að minsta kosti mælir öll sanngirni með því, að nefnd sé sett í málið til að athuga, hvort taka beri kröfurnar til greina eða ekki.