15.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1987 í B-deild Alþingistíðinda. (2455)
139. mál, áætlanir og mælingar verkfræðings
Framsögumaður (Benedikt Sveinsson):
Það er ekki of sagt, að þessar þingsályktunartillögur eru nokkuð margar; þær eru á 6 þingskjölum og auk þess sumar í mörgum liðum. Þessum tillögum hefir öllum verið vísað til samgöngumálanefndarinnar. Hún hefir svo athugað þær og er öll á eitt mál sátt um það, að flutningsmenn þessara tillagna hafi að vísu mikið til síns máls, er þeir fara fram á það, að stjórnin hlutist til um, að ransökuð verði brúastæði, vegir, hafnir og lendingar.
Það er kunnugra, en frá þurfi að segja, að hér á landi eru margar og miklar torfærur bæði á sjó og landi, og yrði því slík ransókn almenningi til hags.
Nefndin hefir nú borið þessar tillögur undir verkfræðing landsins, þann, er aðal-umsjónina hefir með vega- og samgöngumálum; hafa nefndarmenn þar gert grein fyrir hverju atriði. En það hefir komið í ljós, að sumstaðar, þar sem ætlast er til þess, að ransókn fari fram, þar er henni þegar lokið, og þykir því ástæðulaust að skora á stjórnina að láta rannsaka þá staði aftur.
Í annan stað yrði ransókninni ekki lokið fyr, þótt skorað væri á stjórnina um þetta með sérstökum þingsályktanatillögum, þar sem um jafnmarga staði er að ræða, og verkfræðingarnir hafa ærinn starfa með höndum. Hitt er víst, að þeir láta sitja í fyrirrúmi að ransaka sem fyrst þá staði, er engin rannsókn hefir gerð verið á. Þykir oss mega bera það traust til stjórnarinnar, að hún láti gera þetta, svo fljótt sem unt er.
Finst mér því nægja að bera hér upp rökstudda dagskrá, er eg vil lesa upp með leyfi hæstv. forseta:
»Í fullu trausti þess, að stjórnin láti sem fyrst að við verður komið framkvæma rannsóknir þær, sem um er beðið á þingskjölum 100, 150, 160, 171, 202 og 357, að því leyti, sem það er ekki þegar gert, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá«.