15.02.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í B-deild Alþingistíðinda. (2469)

Umræður um kjörbréfin

Framsögumaður (Kristján Jónsson):

Eg vil að eins gjöra stutta athugasemd út af því sem háttv. 5. kgk. þm. (L. H. B.) sagði. Mér finst að þó að þessi tillaga hafi komið fram frá kjörbr. d., sé ekkert á móti því að þingið kjósi nefnd til að íhuga málið og fresti úrskurði um kosninguna. En eg geri það ekki að minni tillögu; því hana hefi eg komið með áður.