15.02.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í B-deild Alþingistíðinda. (2470)
Umræður um kjörbréfin
Jón Þorkelsson:
Eg hefi litið á þessa seðla, bæði þá, sem ónýttir hafa verið fyrir síra Birni, og eins hina, sem ónýttir voru fyrir dr. Valtý. Þeir eru mjög gallaðir. Á einum er skafið út, á öðrum var krossinn tvöfaldur og nær út úr hringnum. Sá seðill dr. Valtýs, sem kjörstjörn Seyðisfjarðar taldi gildan og kjörbréfadeildin hér telur nú gildan, er þannig úr garði gerður, að önnur álma krossins er tvöföld, og finst mér að honum ætti að hrinda. Þessir seðlar sýna allir að vísu, hvern kjósandinn hefir viljað kjósa, en eru þó ekki eins og lög skipa. Seðlarnir sem kjörbréfadeildin hefi viljað taka til gilda, eru álíka gallaðir og seðlar þeir, sem hrundið var hópum saman við kosninguna hér í Reykjavík í haust. Eg styð því till. hins háttv. þm. Vestur-Ísf. (Kr. Dan.) að nefnd sé kosin. Eg veit að þingið vill ekki hrapa að þessu máli, heldur athuga það sem bezt og komast að sem réttustum úrslitum.