15.02.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í B-deild Alþingistíðinda. (2481)
Umræður um kjörbréfin
Jón Magnússon:
Eg er á sama máli og þeir háttv. þingmenn, sem enga nefnd vilja kjósa sérstaklega í þessu máli. Þannig löguð nefnd væri á móti þingsköpunum. Þyki þurfa að rannsaka kosninguna frekar, þá væri vegurinn sá að fresta því að kveða á um gildi kosningarinnar, en þá kemur málið af sjálfu sér til nefndar þeirrar, er síðar á að skipa eftir þingsköpunum til þess að rannsaka kjörbréf, hinnar svonefndu kjörbréfanefndar. Mér fyrir mitt leyti er alveg sama, hvort kosning dr. Valtýs Guðmundssonar er tekin gild í dag eða á morgun; en mér finst óþarfi að vera að eyða tíma þingsins með frestun, því að í mínum augum er enginn efi á því, að það eigi að samþykkja eða taka gilda kosninguna.