16.02.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í B-deild Alþingistíðinda. (2502)
Umræður um kjörbréfin
Lárus H. Bjarnason:
Eg vil að eins geta þess, að þar sem kjörbókarútskrift án kjörbréfs hefir verið tekin gild, þá hefir þess alt af verið getið í kjörbókarútskriftinni, að kjörbréf hafi verið útgefið. Það er ekki dæmi til þess, að kosning hafi verið tekin gild, þar sem hvorki hefir legið fyrir kjörbókarútskrift með yfirlýsingu um kosningarúrslit né kjörbréf.