16.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 877 í B-deild Alþingistíðinda. (2696)
63. mál, gagnfræðaskólinn á Akureyri
Jens Pálsson:
Þetta mál, eins og alt annað, sem snertir æðri mentastofnanir landsins, er að mínu áliti allrar athugunar vert. Einkum eru það tvö atriði, sem mér finnast þurfa athugunar við.
Í fyrsta lagi er það, að frumvarpið fer fram á, að stofna nýtt embætti með eftirlaunum. En það er alt af varhugavert, að stofna slík embætti, nema brýna nauðsyn beri til. Eg játa það, að því færri sem fastir kennarar eru, því meiri tímakenslu þarf að kaupa. Að vísu kostar tímakensla nokkuð, en hún er þó tiltölulega billegri en kensla fastra kennara. Mér telst svo til, að útgjaldaaukinn til fastra kennara eftir frumvarpinu nemi 2400 kr. árlega.
Annað atriðið, sem mér finst mest athugavert, er það að frumvarpið nemur úr gildi 4. gr. laganna nr. 38 10. nóv. 1903. En í þeirri grein er svo fyrir mælt, að í skólanum skuli vera alt að 45 til 50 heimavistir. Það er varhugavert að gera svona mikilvæga breytingu. Þá væri það komið undir ákvörðunum, sem gætu verið breytilegar, hvort heimavistir skuli hafðar eða ekki. Eg er þeirrar skoðunar, að heimvistir séu hollar og góðar í hverjum slíkum skóla, ef annars andinn í skólanum er góður.
Þetta tvent finst mér sérstaklega athugavert, og eg ætla ekki að orðlengja mikið um málið að öðru leyti.
Mér heyrðist háttv. 6. kgk. þm. segja, að skólatíminn við Akureyrarskóla væri 8 mánuðir. Mig minti að hann væri aðeins 7½ mánuður, en það getur vel verið misminni. (Stefán Stefánsson: Það eru 8 mánuðir). Þökk fyrir þær upplýsingar. Það munar þá ekki nema einum mánuði á skólatíma Akureyrarskóla. En vitanlega er sá munur í raun og veru mikill. Því að þegar júnímánuður bætist við sumarfríið, má heita að nemendur og kennarar hafi sumarið óskert, til fjárafla og skemtana. Við hinn almenna mentaskóla er sumarfríið aftur á móti mjög skert; það eru aðallega tveir mánuðir, júlí og ágúst, því að úr því kemur fram í september, má heita að sumarið sé um garð gengið.
Þessi munur gerir það, að það er eðlilegt að nokkur munur sé á launum kennaranna. Og þeim, sem hafa langt sumarfrí, er ætlandi að leggja nokkuð meira á sig meðan skólinn stendur. Sá, sem hefir lengri tíma árs til þess að hvíla sig og safna nýjum kröftum, ætti að þola meiri vinnu hinn tímann heldur en sá, sem hefir styttri frítíma og lengri vinnutíma.
Þetta eru aðeins almennar athugasemdir, en eg vil taka það fram, að eg vil taka málinu vel. Og mér finst sjálfsagt að kjósa nefnd í það, eða þá að vísa því til nefndarinnar sem skipuð var til að athuga tillöguna til þingsályktunar um stofnun gagnfræðaskóla á Ísafirði.