23.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 557 í B-deild Alþingistíðinda. (306)

16. mál, aðflutningsbann

Lárus H. Bjarnason:

Eg ætla að svo komnu ekki að fara út í aðfinslur háttv. þm. Akureyrar. Það yrði að eins til að tefja tímann og ef til vill til að spilla fyrir málinu. Eg Stend að eins upp til þess að koma með þá tillögu, að skipuð sé 5 manna nefnd í málið, úr því að hæstv. forseti ekki álítur slíka tillögu. fram komna fyr.