26.04.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 595 í B-deild Alþingistíðinda. (340)

18. mál, borgaralegt hjónaband

Jón Ólafsson:

Af því að eg var flutningsmaður þessa frumv. er það kom fram í Nd., vil eg lýsa yfir því fyrir mína hönd og annara fylgismanna frv., að þótt vér eigi getum komið frumv. í það horf, sem vér hefðum ákosið, þá viljum vér samt eigi eyðileggja málið fyrir þá sök.