23.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 620 í B-deild Alþingistíðinda. (385)

24. mál, kornforðabúr

Framsm. (Kristinn Daníelsson):

Nefndin hefir komið fram með þessa örlitlu breytingu á þgskj. 552, við 3. gr. frv., sem háttv. deild svo gott sem kom sér saman um við síðustu umr. málsins. Breytingin er í því falin, að orðin »að efni« í 3. línu 3. gr. falli burt. Það þykir tryggara að leyfa ekki einu sinni orðabreytingar á frumvarpi til samþyktar, eftir að það hefir komið frá sýslunefnd. — Eg þarf víst ekki að fara fleiri orðum um þessa breytingu, en vonast til að háttv. deildarmenn samþykki hana.