14.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 646 í B-deild Alþingistíðinda. (427)
29. mál, námskeið verslunarmanna
Eiríkur Briem:
Eg vil að eins geta þess, að mér finst betra að halda orðinu »verzlunarstjórnandi«, en að setja »verzlunareigandi« í þess stað. Eg get ímyndað mér, að þegar námssamningar eru gerðir, sé oft tekið mikið tillit til persónulegra eiginlegleika og mannkosta verzlunarstjórans. Og því finst mér eðlilegt, að unglingurinn sé ekki bundinn við samninginn, þegar nýr maður tekur við stjórninni.
Eg vildi líka benda á, að ákvæði 11. gr. mætti falla burtu. Þar stendur: »Fyr en námssamningi er löglega slitið, má enginn taka nemanda annars manns í kenslu«. Eg skil ekki hvað meint er með þessu. Ef meint er hvers konar kensla, sem vera skal, er ákvæðið mjög ósanngjarnt. Það er alveg ótækt, að banna unglingnum að leita sér tilsagnar í nokkurri fræðigrein, þó að hann hafi tíma eg tækifæri til, án þess að brjóta bág við skyldur sínar gegn húsbónda. En ef að eins er átt við kenslu í verzlunarfræði, er ákvæðið alt of ónákvæmt og auk þess alveg óþarft, því að slíkt leiðir af hlutarins eðli og almennum réttarreglum.