28.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 664 í B-deild Alþingistíðinda. (454)
33. mál, botnvörpuveiðar
Ágúst Flygenring:
Eg skal leyfa mér að segja að eins örfá orð til þess að skýra, hvernig stendur á þessu frv. Nefndin í fiskiveiðamálum hefir borið það fram og háttv. Nd. hefir samþykt það. Undanþágan frá 2. gr. laga 8. júlí 1902 er fólgin í því, að eftir þeim lögum eiga allir botnvörpungar, hvort sem þeir eru íslenzkir eða ekki, að hafa öll veiðarfæri sín í búlka, þegar þeir koma inn á hafnir, en eftir þessu frv. þurfa íslenzk skip ekki að gera slíkt, ef þau hafa fengið sérstakt leyfi til þess. Það er mikil fyrirhöfn að taka vörpuhlerana innanborðs og loka þá niður undir þiljur; menn hafa kvartað mikið undan því.
Eg lít nú svo á, að þessa undanþágu ætti að veita öllum innlendum botnvörpungum. En hitt væri þó máske viðkunnanlegra, að það væri tekið skýrar fram í frv., undir hvaða kringumstæðum má veita undanþáguna.
Mér sýnist ekki frekari ástæða til þess að skylda þessi skip til að ganga undir sérstöku merki.
Eg skal svo ekki fara fleirum orðum um þetta, en að eins lýsa því yfir, að mér findist það réttast, ef háttv. deild samþykti frv., án þess að nefnd yrði skipuð í það.