02.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 706 í B-deild Alþingistíðinda. (509)

36. mál, sala á Kjarna

Forseti:

Með því að það stóð öllum opið að koma með breytingartillögur við frumv. við 2. og 3. umræðu, þá get eg ekki séð ástæðu til að taka málið út af dagskrá. — Skal þó bera það undir atkv. háttv. deildar, ef þess er óskað.

Var það þá borið undir atkv. deildarinnar, og felt með 6 atkv. móti 4, að taka málið út af dagskrá.