08.05.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í B-deild Alþingistíðinda. (54)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Jón Sigurðsson:

Eg hefi leyft mér að koma fram með breyt.till. um fjárveitingu til Borgarfjarðarbrautarinnar og vonast til að háttv. þing taki henni vel og sanngjarnlega. Eg hygg að það sé ekki rétt sparnaðarstefna, að klípa svo mjög af því fé, er verja á til hinna stærri vegabóta í landinu. Þess konar sparnaður marghefnir sín síðar meir.