06.05.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 768 í B-deild Alþingistíðinda. (601)

46. mál, verslunarbækur

Jón Ólafsson:

Eg get þess út af ræðu hins háttv. 1. þm. G.-K., að hann mun ekki hafa reynt þær bækur, sem hér er ætlast til að nota. Eg gekk til hans yfir að sæti hans rétt áðan og skoðaði hjá honum bók þá, er hann hafði reynt að rita með bleki í, en það var ekki von að það hefði tekist, því að bókin var ekki til þess gerð, heldur var það blýants-kopíubók.