30.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 789 í B-deild Alþingistíðinda. (642)

51. mál, stofnun landsbanka

Ágúst Flygenring:

Fyrst að næsta máli á undan (um kaup á hlutabréfum Íslandsbanka) var vísað í nefnd, er ekki síður ástæða til að vísa þessu máli í nefnd, og leyfi eg mér því að stinga upp á að málinu verði vísað til nefndarinnar, sem sett var í næsta mál á undan.