09.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 808 í B-deild Alþingistíðinda. (673)

53. mál, sóknargjöld

Lárus H. Bjarnason:

Eg sting upp á að frumv. verði vísað til nefndarinnar í prestalaunamálinu. Finst mér það vel til fallið, þar sem flutningsmaður frumv., auk margra annara góðra manna, á sæti í þeirri nefnd.