03.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 838 í B-deild Alþingistíðinda. (700)
55. mál, dánarskýrslur
Framsögum. (Sigurður Hjörleifsson):
Eg ætla að eins að gefa ofurlitla bendingu. Þrír deildarmenn virðast hafa skilið 1. gr. svo, sem þar sé talað um almenna líkskoðun; en það er ekki svo. Í 1. gr. er ekki gert ráð fyrir líkskoðun, nema því að eins að læknir sé í sömu sókn og hafi ekki séð sjúklinginn í banalegunni.
Auk þess er hér ekki gert ráð fyrir eiginlegri líkskoðun, sem hefir það markmið að tryggja menn gegn kviksetning, rannsaka hvort eitrun eigi sér stað, hvort hinum látna hafi verið ráðinn bani o. þessh.
Hér er að eins átt við dánarskýrslur, skýrslur um dauðamein.