17.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í B-deild Alþingistíðinda. (987)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Jón Ólafsson:

Eg skal kannast við það sem háttv. form. nefndarinnar gat um, að ekki hafi nefndin haft lengri tíma nú en viðgengist hefir áður.

En þar sem nefndinni var kunnugt um, að hér þurfti að hafa hraðara á en áður, sakir utanfararinnar, þá virðist hefði mátt flýta störfunum um einn sólarhring.