19.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í B-deild Alþingistíðinda. (995)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Skúli Thoroddsen:

Viðvíkjandi þessari færslu athugasemdanna, skal eg geta þess, að eg vissi alls ekki af þeirri tillögu, fyr en eg sá hana í nefndarálitinu, en eg var fjarverandi á einum fundi, og má vera, að tillagan hafi þá verið samþykt.

Eg fyrir mitt leyti greiði atkvæði móti tillögunni, því að eg tel miklu gleggra og handhægra að hafa hverja athugasemd við sinn lið í fjárlögunum.