04.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í B-deild Alþingistíðinda. (1026)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Eggert Pálsson:
Eg vil að eins fara örfáum orðum um breyt.till. mína á þgskj. 890. Hún er að því leyti ólík flestum öðrum breyt.till., að hún hefir ekki nein aukin útgjöld í för með sér. Tillagan er um það, að ef með útsjón og hagsýni nokkuð fé sparaðist við brúargerðina á Rangá, þá mætti verja því, til þess að brúa Varmadalslæk, sem er þar á þjóðveginum rétt fyrir austan. Eg hefi fært þetta í tal við verkfræðing landsins og álítur hann það mjög haganlegt, að slík heimild væri til, ef til kæmi. En það er að svo vöxnu máli ekki hægt að segja með neinni vissu um það, hvort nokkuð fé geti sparast eða ekki. En það liggur í augum uppi, að þar sem um svo mikla upphæð er að ræða, getur það eins vel átt sér stað, að dálitið fé gangi af eins og það vanti. Áætlun getur ekki verið svo nákvæm. En það er heldur hvöt til þess að spara fyrir þá, sem að verkinu vinna, bæði í flutningum og öðru, sem eg geri ráð fyrir, að verði menn þar eystra, þegar þeir eiga von á því, að vatnsfall, sem er ilt yfirferðar, fái að njóta góðs af sparnaðinum. Eg skal játa, að Varmadalslækur er hvergi nærri eins vont vatnsfall og Rangá, því það er hægt að fara með vagna yfir hann hindrunarlítið á sumardegi. En hann er sérstaklega oft illur yfirferðar á vetrardegi og póstur tefst oft við hann, svo sem skýrsla háttv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.) á síðasta þingi ber vott um. Hér er eingöngu um það að ræða, að verja megi fé til þessarar brúargerðar, ef svo mikið kann að sparast við sjálfa brúargerðina á Rangá. Verkfræðingur landsins álítur, að brúin á lækinn mundi kosta c. 3000 kr., og geri eg ráð fyrir, að háttv. þingdm. muni álíta það vel ráðið, ef hann yrði brúaður um leið og áin með þessum hætti. Því ef hann yrði brúaður seinna, sem hlýtur að reka að, þá mundi það kosta töluvert að flytja að verkfæri og áhöld og enda menn, sem nú í sumar verður þar alt við hendina, svo að það væri því þannig sýnilega mikill sparnaður, ef lækurinn gæti orðið brúaður um leið og áin.