08.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 665 í B-deild Alþingistíðinda. (1132)

142. mál, landsreikningurinn 1908-1909

Framsögum. (Ólafur Briem):

Reikningslaganefndin hefir athugað frv. þetta. Á því hefir að eins verið gerð sú breyting, að breyting, sem hér í neðri deild var gerð á útgjaldalið 6 A., er færð yfir á gjaldlið 6 B. og er þetta að eins nauðsynleg leiðrétting. Nefndin fann ekkert annað athugavert, og býst við að frumvarpið verði samþykt.