09.05.1911
Sameinað þing: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 272 í B-deild Alþingistíðinda. (123)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Ráðherra (Kr. J.):
Eg verð að segja, að mér þótti ræða hv. þm. Ísafj.kaupstaðar harla einkennileg á ýmsan hátt. Hann mintist einmitt á 2 þau atriðin, sem eg hafði hugsað mér að segja um fáein orð, og hann mintist á þau á annan veg en eg hafði búist við af honum. Eg á hér við Bjargtangavitann og viðskiftaráðunautinn, eins og þingið mun skilja. Um Bjargtangavitann er það að segja, að nú er margbúið að fella hann hér í þinginu. Eg hefi í dag átt tal við þann starfsmann landsins, vitaumsjónarmanninn, sem hefir þessi mál með höndum, og hann álítur málið gersamlega óundirbúið. Það er enn ekki einu sinni búið að ákveða, hvar vitinn skuli standa. Enn fremur vil eg benda á, að tveir nákunnugir og velmetnir siglingarmenn, skipstjórarnir á Botníu og Ceres, hafa sagt, að á þessum vita væri engin nauðsyn, ef góður viti væri settur á Öndverðarnesi, og þar eigi einmitt að setja vitann. Mætti þá setja upp lítið ljósker á Bjargtöngum, eins og nú er á Öndverðarnesi. Þetta er álit þeirra er bezt hafa vit á málinu. Þá er hitt atriðið um viðskiftaráðunautinn. Eg var því fylgjandi á sínum tíma að setja þá fjárv. inn í fjárlögin 1910 og 1911. En að fjárveitingin sé bundin við nafn eins einstaks manns, og að hún sé bundin við það að erindisbréf hans haldist óbreytt, á það get eg eigi fallist. Það er að mínu áliti ekki að eins óhæfilegt málefnisins sjálfs vegna, heldur einnig ósæmileg tortrygging á landstjórninni.