09.05.1911
Sameinað þing: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í B-deild Alþingistíðinda. (134)

111. mál, fjárlög 1912-1913

Magnús Blöndahl:

Eg vil að eins gera þá athugasemd, að tölur þær sem hv. 4. kkj. kastaði nú fram, og flest það sem hann bygði þær á, eru sumpart algerlega rangar og sumpart koma ekkert við því máli, er við vorum að deila um.