04.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1200 í B-deild Alþingistíðinda. (1440)

13. mál, almennar auglýsingar

Framsögumaður (Jón Ólafsson):

Herra forseti! — Eg hefi ekki mikið um þetta frumv. að segja. Í efri deild hefir verið gerð ein breyting við það til spillis, en engin til bóta. Þó vil eg leggja til að háttv. deild samþykki frumvarpið, eins og það er.