28.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1307 í B-deild Alþingistíðinda. (1578)

46. mál, lækningaleyfi

Jón Jónsson 1. þm. S.-Múl.:

Hafi háttv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.) meint svikara nafnið, sem hann nefndi, til mín, þá hefir hann ekki tekið rétt eftir. Eg hefi aldrei sagt, að eg mundi greiða atkv. með brtill. háttv. 1. þm. N.-Múl. (J. J.), en að eins lýst því yfir, að eg mundi ekki greiða atkvæði á móti henni.