11.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1314 í B-deild Alþingistíðinda. (1595)

45. mál, stofnun lagaskóla á Íslandi

Flutningsm. (Jón Magnússon):

Það er allsendis óþarft að blanda málum þessum saman. Hér er hið sama sanngjarna tillit tekið, sem í frumv. um forgangsrétt kandídata frá hinum væntanlega háskóla. Frv. koma alls ekki í bág hvort við annað og virðist mér óþarft að vísa því til nefndar. (Jón Þorkelsson: Eg get fallið frá uppástungu minni um nefnd).