04.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1345 í B-deild Alþingistíðinda. (1634)

66. mál, gjöld til holræsa og gangstétta í Reykjavík

ramsm. (Magnús Blöndahl):

Eg skal ekki fjölyrða um frumv. að þessu sinni. Eins og háttv. þingdeild sér, hefir nefndin komið fram með nefndarálit og breyt.till. á þgskj. 407, og mun eg gera nánari grein fyrir þeim við 2. umr. Að eins skal eg óska þess að frv. fái að ganga til 2. umræðu.