26.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1400 í B-deild Alþingistíðinda. (1760)

86. mál, sjúkrasamlög

Framsögumaður (Jón Þorkelsson):

Nefndin, sem um þetta mál fjallaði hefir orðið á eitt sátt með að samþykkja það, eins og það kom frá efri deild. Málið hefir fengið góðan undirbúning hjá landlækni og svo hefir það einnig verið athugað í háttv. Ed. Við hefðum að vísu kosið, að gerðar hefðu verið orðabreytingar á stöku stað, en höfum þó ekki af þeirri ástæðu viljað vera að hrekja málið milli deildanna og leggjum því til, að frumv. sé samþykt, eins og það er.