29.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1420 í B-deild Alþingistíðinda. (1795)

127. mál, sala á Sigurðarstöðum

Pétur Jónsson:

Eg veit ekki, hvað þessir menn hafa hugsað sér undir niðri, en hitt er víst, að sótt hafa þeir um kaup á jörðinni fyrir hreppinn og maður hefir ekki leyfi til að ætla, að þeir meini annað með því, en þeir segja, — að þeir ætli sér að hafa hana fyrir skólajörð — og eg mótmæli því, að sýslunefndin hafi haft nokkur undirmál.

Eg er yfirleitt á móti allri þjóðjarðasölu, nema til sveitarfélaga og er því einnig á móti því, að þessi jörð sé seld öðrum.